Auglýsing


VÍS






Hundi bjargað af ísjaka
 
 
 
Hundi bjargað af ísjaka

Hundi var í dag bjargað af ísjaka eftir að hafa rekið á jakanum út á Eystrasalt. Það var áhöfn pólsks rannsóknarskips, sem bjargaði hundinum í dag.

Hundurinn sást fyrst á ísjakanum um 100 km inni í landi á ánni Vistula. Ekki tókst að bjarga hundinum þá en þegar áhöfnin á rannsóknarskipinu Baltica sá hundinn í dag var jakinn kominn 24 km út á Eystrasalt. 

Mjög kalt er í Póllandi þessa dagana og komst frost á sumum svæðum í 34 stig í nótt. 

mbl.is greindi frá





Eldri fréttir