
|

Hundaganga Dýrahjálpar Íslands!! |
|
|
|
Sunnudaginn 29. nóvember næstkomandi mun Voffaborg standa fyrir
hundagöngu til styrktar Dýrahjálpar Íslands.
Mæting er kl 13:30 og er öllum frjálst að mæta með hunda sína, fyrir hvern hund
í göngunni er eigendum skylt að greiða 500 krónur fyrir en fær í staðinn
happdrættismiða (og að sjálfsögðu má hver og einn greiða meira fyrir
happdrættismiðann). Dregið verður úr happdrættismiðum hundanna og í
verðlaun verða gjafir fyrir hundana frá hinum ýmsu aðilum sem hafa ákveðið að
styrkja þennan skemmtilega atburð.
ATH. Ekki er hægt að taka við kortum.
Mæting er við Reiðhöllina í Víðidal kl. 13:30. Áætlað er að gangan taki um 1,5
klst.
Eftir gönguna verður kaffi og með því selt í reiðhöllinni.
Allur ágóði af þessum degi rennur beint til Dýrahjálpar.
Mætum öll hress og kát og gerum okkur glaðan dag og hjálpum dýrum í neyð og
ekki gleyma að klæða ykkur eftir veðri!
Atriði sem þarf að hafa í huga í fjöldagöngu:
o Flexi taumar (útdraganlegir) henta ekki í fjöldagöngu. Ef þið eigið bara Flexi, festið tauminn þá í stystu stillingu
o Þegar tveir hundar í taum hittast er nauðsynlegt að hafa tauminn slakann! Ef taumurinn er strekktur myndast frekar spenna milli hundanna
o Gleymið ekki kúkapokum
o Gangan er ekki æskileg hundum undir 6 mánaða aldri
o Ekki gleyma kúkapoka og nammi til að halda athygli hundsins.
o Hafið augun á ykkar hundi, alltaf.
o Þessi ganga er því miður ekki ætluð hundum sem kunna ekki að vera í kringum aðra hunda
o Alls ekki koma með lóðatíkur - það er ávísun á slagsmál
|
|